Arion banki sýnir samfélagslega ábyrgð í verki með því að gera viðskiptavinum gagn og sinna hlutverki sínu sem fjármálafyrirtæki af kostgæfni og ábyrgð. Við tökum virkan þátt í samfélaginu og uppbyggingu þess. Fjármálafyrirtæki eru ein af stoðum samfélagsins og hlutverk okkar er að styðja viðskiptavini okkar, bæði einstaklinga og fyrirtæki, í að ná sínum markmiðum. Arion banki leggur áherslu á sanngirni með hagsmuni viðskiptavina, starfsfólks, hluthafa og samfélagsins alls að leiðarljósi.
Hornsteinar Arion banka, gildin okkar, leiðbeina okkur í daglegum störfum og eru órjúfanlegur þáttur í menningu bankans. Hornsteinarnir eru: við gerum gagn, við komum hreint fram og við látum verkin tala. Þegar kemur að samfélagslegri ábyrgð eru hornsteinarnir vegvísir á þeirri leið að gera stöðugt betur í dag en í gær.
Ábyrgir stjórnarhættir og góðir viðskiptahættir
Hjá Arion banka leggjum við ríka áherslu á ábyrgan rekstur og góða viðskiptahætti og við viljum vera til fyrirmyndar í þeim efnum. Við ákvarðanatöku horfum við til fjölmargra ólíkra þátta og metum þá margvíslegu hagsmuni sem undir liggja. Þar horfum við ekki síður til langs tíma en skamms. Við leggjum mat á þann ávinning og þá áhættu sem ákvarðanir og lánveitingar geta falið í sér með hagsmuni viðskiptavina, starfsfólks, hluthafa og samfélagsins alls í huga.
Á undanförnum árum höfum við komið að fjölda spennandi fjárfestingaverkefna með viðskiptavinum okkar, m.a. með það að markmiði að efla atvinnulíf hér á landi.
Þá höfum við lagt á það áherslu að þau félög sem eru í okkar eigu en í óskyldum rekstri skuli eftir föngum vera komið í sem breiðast eignarhald og þau skráð í kauphöll. Arion banki hefur komið að 60% nýskráninga á undanförnum árum og þannig stuðlað að því að endurreisa innlendan hlutabréfamarkað og fjölga fjárfestingarkostum á almennum markaði.
Arion banki hefur komið að 60% nýskráninga á undanförnum árum og þannig stuðlað að því að endurreisa innlendan hlutabréfamarkað og fjölga fjárfestingarkostum á almennum markaði.
Við stundum ábyrga stjórnarhætti og höfum m.a. sett okkur siðareglur og stefnu um upplýsingagjöf, upplýsingaöryggi, peningaþvætti og jafnréttismál. Gagnsæ ákvarðanataka er lykillinn að ábyrgum stjórnarháttum. Á árinu 2015 fékk Arion banki viðurkenningu frá Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrir að vera fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum í kjölfar ítarlegrar úttektar á stjórnarháttum bankans sem framkvæmd var af KPMG ehf. haustið 2015.
Á árinu 2015 fékk Arion banki viðurkenningu frá Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti fyrir að vera fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum.
Mannauður
Mannauður er hjartað í starfsemi Arion banka og hér starfar þétt liðsheild öflugs starfsfólks. Við kappkostum að búa vel að fólkinu okkar og vinnum markvisst að því að skapa hvetjandi og jákvætt starfsumhverfi þar sem við getum öll vaxið í starfi og eflt kunnáttu okkar.
Við höfum skýra sýn í jafnréttismálum. Stefna bankans er að tryggja jöfn tækifæri og kjör starfsfólks af báðum kynjum og vera eftirsóknarverður vinnustaður fyrir konur jafnt sem karla. Í bankanum er starfandi jafnréttisnefnd og við höfum mótað jafnréttisáætlun sem og aðgerðaáætlun í jafnréttismálum. Arion banki er aðili að Jafnréttissáttmála UN Women og UN Global Compact sem er alþjóðlegt viðmið sem fyrirtæki geta haft að leiðarljósi, bæði til að efla konur innan fyrirtækja og sömuleiðis auka áhrif þeirra í samfélaginu. Á árinu 2015 hlaut Arion banki Jafnlaunavottun VR, fyrstur íslenskra banka, sem meðal annars felur í sér innleiðingu á gæðakerfi í tengslum við laun og launaákvarðanir.
Á árinu 2015 hlaut Arion banki Jafnlaunavottun VR, fyrstur íslenskra banka, sem meðal annars felur í sér innleiðingu á gæðakerfi í tengslum við laun og launaákvarðanir.
Við framkvæmum vinnustaðagreiningar á hverju ári með það að markmiði að efla starfsumhverfið og starfsánægju. Mikilvægt er að gott jafnvægi ríki á milli vinnu og einkalífs og er starfsfólk hvatt með ýmsum hætti til að rækta eigin heilsu og áhugamál. Við líðum hvorki einelti eða kynferðislega áreitni né önnur óæskileg samskipti.
Fjármálalæsi
Hröð þróun fjármálaþjónustu og fjölbreyttir valkostir geta gert fjármálin flókin og erfið viðfangs en fjármálalæsi eykur skilning fólks á eigin fjármálum og þeim valkostum sem í boði eru. Fjármálalæsi nær til ýmissa þátta, allt frá því að fylgjast með fjármálum heimilisins, gera áætlanir og setja sér markmið, til stærri ákvarðana eins og kaupa á húsnæði og vals á lífeyrissparnaði. Stórar ákvarðanir í fjármálum geta haft mikil áhrif á fjárhagslega stöðu fólks til framtíðar en með bættu fjármálalæsi tekur fólk betri ákvarðanir byggðar á skilningi og þekkingu. Með bættu fjármálalæsi nær fólk betri tökum á eigin fjármálum og leggur grunn að fjárhagslegum stöðugleika.
Viðskiptavinir okkar hafa greiðan aðgang að upplýsingum um eigin fjármál og við bjóðum upp á heimilisbókhald sem eykur skilning og yfirsýn yfir fjármál heimilisins. Við bjóðum upp á námskeið og fræðslufundi um hinar ýmsu hliðar fjármála og höfum á að skipa sérmenntuðum fjármálaráðgjöfum sem veita vandaða ráðgjöf. Þannig hjálpum við viðskiptavinum okkar og samfélaginu að skilja betur þá fjölbreyttu valkosti sem eru í boði og að taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál.
Viðskiptavinir okkar hafa greiðan aðgang að upplýsingum um eigin fjármál og við bjóðum upp á heimilisbókhald sem eykur skilning og yfirsýn yfir fjármál heimilisins.
Það er mikilvægt að byrja snemma og því leggjum við áherslu á fjármálafræðslu ungmenna og hefur fjöldi barna og unglinga sótt fjármálanámskeið bankans um allt land. Við tökum einnig virkan þátt í umræðu um fjármál og efnahagslíf í landinu og stuðlum að opinni og upplýstri umræðu með því að bjóða upp á fjölbreytta fundi og ráðstefnur um fjármál og efnahagslíf.
- Greiningardeild Arion banka hélt 7 morgunfundi árið 2015 sem yfir 1.000 manns sóttu á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni
- Alls voru haldnir 10 fræðslufundir víða um land þar sem Jón Jónsson fræddi um 2.000 unglinga á aldrinum 14-16 ára um fjármál
- Yfir 350 viðskiptavinir nýttu sér hraðþjónustunámskeið sem haldin voru í útibúum bankans bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni
- Alls sóttu yfir 4.000 manns fræðslufundi og ráðstefnur á vegum bankans á árinu 2015
Arion banki er aðalbakhjarl Stofnunar um fjármálalæsi sem beitir sér fyrir bættu fjármálalæsi í samfélaginu. Á árinu 2015 var Arion banki einnig aðalstyrktaraðili sjónvarpsþáttanna Ferð til fjár sem sýndir voru á RÚV við góðar undirtektir. Markmið þáttanna var að bæta fjármálalæsi landsmanna.
Nýsköpun
Við hjá Arion banka álítum að aukin verðmætasköpun sé gríðarlega mikilvæg fyrir íslenskt samfélag til framtíðar. Þar skiptir aðstoð við frumkvöðla og stuðningur við fjölbreytt nýsköpunarstarf miklu. Því leggjum við okkur fram um að veita frumkvöðlum aðgengi að ráðgjöf og fjármagni og styðja fyrirtæki í rekstri til frekari vöruþróunar. Arion banki vinnur markvisst með og fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki, sem og fjárfesta.
Hvernig styður bankinn við nýsköpun og frumkvöðla?
- Arion banki starfrækir viðskiptahraðalinn Startup Reykjavík í samstarfi við Icelandic Startups. Startup Reykjavík var valinn besti viðskiptahraðall Norðurlanda árið 2015 af Nordic Startup Awards.
- Arion banki starfrækir Startup Energy Reykjavík ásamt samstarfsaðilum í orkutengdri starfsemi
- Arion banki hefur fjárfest í 54 sprotafyrirtækjum í gegnum Startup Reykjavík og Startup Energy Reykjavík
- Arion banki er í samstarfi við Eyri Invest um rekstur sprota- og vaxtasjóðsins Eyrir Sprotar slhf. Eyrir Invest og Arion banki eru stærstu hluthafar sjóðsins en á árinu 2015 fjárfesti bankinn í sjóðinum fyrir um einn milljarð króna.
Lesa nánar um nýsköpun og Arion banka
Umhverfismál
Arion banki hefur það að leiðarljósi að sýna umhverfinu umhyggju og virðingu. Við höfum einsett okkur að fara sparlega með orku í starfseminni, nýta umhverfisvænar lausnir við prentun og stefnum að aukinni hlutdeild pappírslausra viðskipta. Við flokkum úrgang frá bankanum eins og hægt er hverju sinni og veljum umhverfisvænar vörur og þjónustu við innkaup þar sem því verður við komið.
Við höfum einsett okkur að fara sparlega með orku í starfseminni, nýta umhverfisvænar lausnir við prentun og stefnum að aukinni hlutdeild pappírslausra viðskipta.
Við höfum sett samgöngustefnu sem stuðlar að því að starfsfólk noti vistvænan og hagkvæman ferðamáta. Þannig leggur Arion banki sitt af mörkum til að bæta umhverfið og heilsu starfsfólks bankans. Við viljum sýna gott fordæmi og efla vitund fólks um vistvænar samgöngur.
Árið 2015 rafvæddum við hluta af bílaflota okkar þegar fjárfest var í rafbílum til að nota í starfsemi bankans.
Stuðningur við samfélagið
Við styðjum við fjölmörg félagasamtök í samfélaginu sem við störfum í. Arion banki er bakhjarl HSÍ, Íþróttasambands fatlaðra og Hörpu tónlistarhúss og styður að auki veglega við góðgerðamál eins og Krabbameinsfélag Íslands og Mæðrastyrksnefnd. Á landsbyggðinni styðja útibú bankans við fjölbreytt íþrótta- og menningarstarf í heimabyggð sinni.
Á árinu 2015 gaf Arion banki Landspítala háskólasjúkrahúsi fjármuni til kaupa á 400 nýjum sjúkrarúmum og dýnum.