Ársskýrsla 2015
Ársreikningur
Fjárhagur og áhættustýring
  • Fjármögnun og lausafjárstaða
  • Áhættustýring
  • Fjárhagsniðurstöður
  • Fjárhagsskjöl
  • Árið 2015
    • Lykiltölur
    • Ávarp stjórnarformanns
    • Ávarp bankastjóra
    • Helstu atburðir ársins
    • Efnahagsumhverfið
  • Mannauður og stjórnarhættir
    • Mannauður
    • Yfirstjórn
    • Stjórn
    • Stjórnarhættir
  • Stefna og samfélagsábyrgð
    • Stefna og framtíðarsýn
    • Samfélagsábyrgð
    • Nýsköpun
  • Betri bankaþjónusta
    • Þjónustusvið
    • Stoðsvið
    • Innra eftirlit
    • Dótturfélög
    • Eignaumsýslufélög
  • Fjárhagur og áhættustýring
    • Fjármögnun og lausafjárstaða
    • Áhættustýring
    • Fjárhagsniðurstöður
    • Fjárhagsskjöl

Fjármögnun og lausafjárstaða

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P) hækkaði lánshæfismat bankans úr BB+ í BBB- í júlí og og breytti jafnframt horfum á lánshæfismati í jákvæðar í byrjun árs 2016. Í mars gaf bankinn út skuldabréf í evrum að upphæð 300 milljónir evra til breiðs hóps fjárfesta. Skuldabréfaútgáfan var sú stærsta sem íslenskur banki hefur ráðist í á undanförnum árum og markaði tímamót í aðgengi íslenskra banka að erlendum fjármálamörkuðum.

Fjármögnun

Stærstur hluti fjármögnunar bankans er í formi innlána frá viðskiptavinum. Á síðustu misserum hefur bankinn stigið afgerandi skref til að auka fjölbreytni fjármögnunarkosta, meðal annars með útgáfu skuldabréfa í evrum og norskum krónum. Á innlendum markaði hefur bankinn haldið áfram að gefa út sértryggð skuldabréf og víxla.

Samsetning fjármögnunar

EMTN útgáfur

Í byrjun mars gaf Arion banki út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur um 45 milljörðum íslenskra króna. Um er að ræða fyrstu útgáfu íslensks banka í evrum, frá endurreisn fjármálakerfisins, sem seld er til breiðs hóps fjárfesta. Í heild bárust tilboð frá um 100 fjárfestum fyrir rúmlega 675 milljónir evra. Umframeftirspurn var því ríflega tvöföld. Skuldabréfin eru til þriggja ára og bera fasta 3,125% vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 3,10% álagi yfir millibankavexti.  

Í byrjun mars gaf Arion banki út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur um 45 milljörðum íslenskra króna. Um er að ræða fyrstu útgáfu íslensks banka í evrum, frá endurreisn fjármálakerfisins, sem seld er til breiðs hóps fjárfesta.

Á árinu lauk bankinn skuldabréfaútgáfu í norskum krónum. Í júní 2015 voru gefin út skuldabréf fyrir 500 milljónir norskra króna til fimm ára. Skuldabréfin bera fljótandi NIBOR vexti að viðbættu 2,95% vaxtaálagi. Á sama tíma var gerður skiptasamningur sem þýðir að hluta vaxta og höfuðstóls er skipt í evrur. Vaxtakjör í evrum eru fljótandi EURIBOR +2,74%. Umframeftirspurn var í útboðinu. Í nóvember var útgáfan stækkuð um 300 milljónir norskra króna á kjörum sem samsvara NIBOR vöxtum með 2,80% álagi. Skuldabréfin voru seld til fjárfesta í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku og á meginlandi Evrópu. 

Í byrjun árs 2016 lauk bankinn samningum við Kaupþing um fjármögnun. Samningurinn kveður á um útgáfu Arion banka á skuldabréfi að fjárhæð $747.481.000 eða um 97 milljarða króna. Skuldabréfið er til sjö ára, en er uppgreiðanlegt á vaxtagjaldögum fyrstu tvö árin. Skuldabréfið ber fljótandi LIBOR vexti að viðbættu 2,6% álagi fyrstu tvö árin og mun vaxtaálagið að þeim tíma liðnum taka mið af markaðskjörum. Skuldabréfið kemur til skuldajöfnunar á láni í erlendum myntum, sem bankinn var áður með hjá Seðlabanka Íslands en er nú í eigu Kaupþings, og innlána Kaupþings hjá Arion banka í erlendum myntum. Útgáfan er liður í aðgerðum sem snúa að Kaupþingi og miða að afnámi fjármagnshafta og tilkynnt var um af fjármála- og efnahagsráðuneytinu 8. júní 2015.
 
Í byrjun árs 2016 lauk bankinn samningum við Kaupþing um fjármögnun. Samningurinn kveður á um útgáfu Arion banka á skuldabréfi að fjárhæð $747.481.000 eða um 97 milljarða króna.
Á árinu voru víkjandi lán frá íslenska ríkinu greidd niður um 20 milljarða króna. Til niðurgreiðslunnar voru notaðir fjármunir sem fengust úr skuldabréfaútgáfum bankans í erlendum myntum. Við niðurgreiðslu víkjandi láns lækkaði vaxtakostnaður bankans talsvert þar sem víkjandi lánið bar frá byrjun árs 2015 fljótandi LIBOR/EURIBOR vexti að viðbættu 5% álagi.

Hækkun á lánshæfismati – Arion banki í fjárfestingarflokk

Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor´s (S&P) hækkaði lánshæfismat Arion banka úr BB+ í BBB- með stöðugum horfum. Hækkunin kom í kjölfar kynningar áætlunar um afnám gjaldeyrishafta. Nýja lánshæfismatið setur bankann í fjárfestingarflokk.
Í byrjun árs 2016 breytti Standard & Poor´s horfum á lánshæfiseinkunn bankans úr stöðugum í jákvæðar. Breytingin á horfum er fyrst og fremst byggð á jákvæðum breytingum í íslensku efnahagslífi og telur S&P líklegt að sú jákvæða þróun haldi áfram í ljósi þess árangurs sem náðst hefur við undirbúning afnáms fjármagnshafta.
 

Lánshæfismat Arion banka og íslenska ríkisins gefið út af S&P

  Ísland   Arion banki
Langtíma einkunn  BBB+  BBB-
Skammtíma einkunn  A-2  A-3
Horfur Stöðugar Jákvæðar
Endurgreiðsluferill langtímafjármögnunarMilljarðar króna

Útgáfa sértryggðra skuldabréfa og víxla

Arion banki hélt áfram útgáfu sinni á sértryggðum skuldabréfum sem tryggð eru samkvæmt lögum nr. 11/2008 um sértryggð skuldabréf. Á árinu voru gefin út sértryggð skuldabréf fyrir 23.600 milljónir króna. Í ágúst var gefinn út nýr óverðtryggður flokkur ARION CB 22.

Arion banki undirritaði samning við Kviku, Íslandsbanka og Landsbanka um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum á Nasdaq Íslandi útgefnum af Arion banka. Tilgangur samninganna er að efla viðskipti með markflokka sértryggðra skuldbréfa sem eru útgefin af bankanum.

Bankinn hefur haldið áfram útgáfu víxla á innlendum markaði, en útgáfa víxla hefur aukið enn frekar fjölbreytni í fjármögnun bankans. Alls voru gefnir út víxlar að fjárhæð 6.030 milljónir á árinu 2015. 

Lausafjárstaða og lausafjáráhætta

Bankinn er fjármagnaður að hluta með innlánum frá einstaklingum, fyrirtækjum og lífeyrissjóðum. Eitt af meginmarkmiðum Arion banka er að viðhalda sterku lausafjárþekjuhlutfalli (e. liquidity coverage ratio, LCR) sem er reiknað samkvæmt reglum Seðlabankans. LCR tekur mið af evrópskum lausafjárreglum sem byggja á Basel III staðlinum og tekur á áhættuþáttum sem snerta hvikleika innlána og tímamisvægi eigna og skulda. Í árslok var lausafjárþekjuhlutfall bankans 134% og fyrir erlenda gjaldmiðla var hlutfallið 218%, sem er vel yfir þeim mörkum sem reglur Seðlabankans kveða á um.  

Í árslok var lausafjárþekjuhlutfall bankans 134% og fyrir erlenda gjaldmiðla var hlutfallið 218%, sem er vel yfir þeim mörkum sem reglur Seðlabankans kveða á um.

Óvissu hefur verið að mestu eytt í tengslum við losun fjármagnshafta og fyrirhugað útboð vegna aflandskróna hefur hverfandi áhrif á lausafjárstöðu bankans. Lausafjáreignir bankans í lok árs 2015 námu 192.183 milljónum króna eða um 19% af heildareignum.

Fjármögnunarhlutfall bankans (e. Net Stable Funding Ratio, NSFR) var 105% í árslok 2015 og 123% í erlendum gjaldmiðlum. Hlutfallið vegur tiltæka stöðuga fjármögnun bankans gagnvart nauðsynlegri stöðugri fjármögnun samkvæmt aðferð sem tekur m.a. tillit til seljanleika eigna og gjalddaga skulda. Hlutföllin sýna að fjármögnun bankans er stöðug. 

Fjármögnunarhlutfall bankans (e. Net Stable Funding Ratio, NSFR) var 105% í árslok 2015 og 123% í erlendum gjaldmiðlum.

 

Innlán frá viðskiptavinum eftir LCR flokkun
SkammtímafjármögnunHeildarinnlán bundin / óbundin
EnglishEN Lykiltölur Fjárhagsskjöl Facebook
Eignaumsýslufélög
Fara efst
Áhættustýring