Margs konar áhætta er samofin starfsemi Arion banka sem fjármálastofnunar og stafar af daglegum rekstri. Áhættustýring er því grundvallarþáttur í starfi bankans. Stefna bankans er að hafa virka áhættustýringu sem felur í sér að greina og mæla verulega áhættu og grípa til aðgerða ef hún fer út fyrir skilgreind mörk.
Stjórn bankans ber endanlega ábyrgð á áhættustýringarkerfi hans og ber að tryggja að viðunandi áhættustefnur og stjórnarhættir séu ákvarðaðir til þess að fylgjast með áhættuþáttum. Stjórn bankans felur áhættustýringu dótturfélaga í hendur viðkomandi dótturfélaga. Fyrir móðurfélagið (bankann) ákvarðar bankastjórnin áhættuvilja. Áhættuviljinn er settur fram sem takmörk á áhættuþáttum og mörkum sem áhættustýringarsvið bankans fylgist með.
Áhættustýringarsvið bankans starfar undir stjórn framkvæmdastjóra áhættustýringar. Sviðið er sjálfstæð stjórnunareining og ber beina ábyrgð gagnvart bankastjóra. Nánari upplýsingar um áhættustýringarsvið.
Í bankanum starfa nokkrar nefndir sem stýra áhættu. Endurskoðunar- og áhættunefnd (BARC) stjórnar bankans ber ábyrgð á eftirliti með áhættustýringarkerfi bankans, áhættuvilja og innramatsferli á eiginfjárþörf. Eigna- og fjárhagsskuldbindinganefnd (ALCO), undir formennsku bankastjóra eða staðgengils hans, ber ábyrgð á umsjón með misvægi eigna og skulda; lausafjáráhættu, markaðsáhættu, vaxtaáhættu og eiginfjárstýringu. Fjárfestingaráð (UIC) tekur ákvarðanir um sölutryggingu og fjárfestingu. Í bankanum starfa fjórar lánanefndir: Lánanefnd stjórnar (BCC), sem tekur ákvarðanir um alla meiri háttar útlánaáhættu, lánanefnd Arion banka (ACC), sem starfar innan heimilda sem skilgreindar eru sem hlutfall af eigin fé bankans og svo fyrirtækjalánanefnd (CCC) og útibúanefndir (RBC), sem hafa þrengri lánaheimildir. Starfræktar eru fimm verðmatsnefndir sem ætlað er að setja viðmið fyrir bankann við mat á tryggingum og yfirfara verðmat á verðbréfum í eigu bankans.
Helstu áhættuþættir bankans eru útlánaáhætta, þ.m.t. samþjöppunaráhætta, lausafjáráhætta, gjaldeyrisáhætta, vaxtaáhætta, lagaleg áhætta og rekstraráhætta. Í Áhættuskýrslu bankans árið 2015 er fjallað ítarlega um áhættuþættina og stýringu þeirra.
Eiginfjárþörf
Eigin fé bankans er ætlað að mæta áhættunni af óvæntu tapi sem orðið getur í starfsemi hans. Stærð eiginfjárgrunns bankans á að endurspegla áhættuna á hverjum tíma ásamt mögulegri óhagstæðri framtíðarþróun. Áhættan á efnahagsreikningi bankans er metin með útreikningi á svokölluðum áhættugrunni, en bankinn áhættuvegur eignir sínar miðað við staðalaðferð.
Eiginfjárgrunnur bankans var 195,7 milljarðar kr. í árslok 2015 og þar af nam eiginfjárþáttur A 189 milljörðum kr. Á árinu 2015 endurgreiddi bankinn tvo þriðju hluta af víkjandi láni frá íslenska ríkinu og lækkaði við það eiginfjárþáttur B um 20 milljarða kr. Áhættugrunnur bankans nam 808 milljörðum kr. í árslok 2015 og hækkaði um 112 milljarða kr. á árinu. Megnið af þeirri hækkun útskýrist af virðisaukningu eignarhlutar í Bakkavor Group Ltd. og tilsvarandi hækkun á gjaldeyrisójöfnuði. Í kjölfar sölunnar á hlut bankans í félaginu í janúar 2016 gengu þessi áhrif til baka. Eiginfjárhlutfall bankans í lok árs 2015 var 24,2%.
Til viðbótar við eiginfjármat samkvæmt eiginfjárreglum metur bankinn eiginfjárþörf samkvæmt innramatsferli (e. Internal Capital Adequacy Assessment Process, ICAAP). Innramatsferlið er ferli sem ætlað er að tryggja að bankinn búi yfir fullnægjandi áhættustýringarferlum og kerfum til þess að greina, stýra og mæla heildaráhættu bankans. Matsferlið miðar að því að greina og mæla áhættu samstæðunnar út frá öllum áhættuþáttum, einnig þeirra sem ekki er gert ráð fyrir í stöðluðum aðferðum undir Stoð 1, og tryggja að samstæðan ráði yfir eigin fé í samræmi við alla undirliggjandi áhættu. Fjármálaeftirlitið (FME) hefur eftirlit með samstæðunni, tekur við upplýsingum um innra mat samstæðunnar á eiginfjárþörf og ákvarðar eiginfjárkröfur fyrir samstæðuna í heild í kjölfar könnunar- og matsferlis (e. Supervisory Review and Evaluation Process, SREP). Sú eiginfjárþörf sem myndast vegna innramats FME til viðbótar við lögbundna 8% eiginfjárkröfu undir Stoð 1 (e. Pillar 1) nefnist viðbótareiginfjárkrafa undir Stoð 2 (e. Pillar 2). Eiginfjárgrunnur samstæðunnar uppfyllir þessa kröfu FME. Bankinn birtir ekki viðbótareiginfjárkröfu undir Stoð 2 vegna óvissu um samspil hennar við eiginfjárauka sem taka gildi árið 2016.
Þann 1. mars 2016 tók FME ákvörðun um eiginfjárauka sem taka gildi á árinu 2016 og munu að samtölu verða 8,5% þegar þeir hafa virkjast af fullum þunga þann 1. mars 2017 fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki en Arion banki flokkast sem slíkt. Eiginfjáraukarnir eru fjórir, (i) verndunarauki, (ii) eiginfjárauki vegna kerfisáhættu (sem einskorðaðst við innlendan hluta áhættugrunns), (iii) eiginfjárauki vegna kerfislegs mikilvægis og (iv) sveiflujöfnunarauki. Eiginfjáraukunum er ætlað að tryggja að bankinn viðhaldi lágmarks eigin fé þrátt fyrir alvarleg áföll. Bankinn metur áhrif slíkra áfalla með reglulegum álagsprófum.
Útlánaáhætta
Útlánaáhætta er hættan á að mótaðili efni ekki skuldbindingar sínar á fyrir fram ákveðnum tíma með afleiðingum fyrir tekjur og efnahag bankans. Lán til viðskiptavina og fjármálastofnana eru langstærsta uppspretta útlánaáhættu.Sterkt safn íbúðalána með lækkandi vanskilum og batnandi veðhlutföllum
Íbúðalán eru kjarnaafurð í vöruframboði Arion banka. Íbúðalánasafn bankans jafngilti 37% af heildarlánum í árslok og hefur þetta hlutfall aukist úr 12% frá því í árslok 2010. Lykillinn að þessum mikla vexti var yfirtaka bankans árið 2011 á íbúðalánasafni sem áður tilheyrði Kaupþingi og uppgjör á Drómaskuldabréfinu árið 2013, en samhliða því hafa nýjar lánveitingar Arion banka til íbúðakaupa gengið vel. Bankinn hefur verið í fararbroddi á íbúðalánamarkaði, þar sem hann hefur m.a. boðið upp á óverðtryggð íbúðalán. Í árslok 2015 voru óverðtryggð lán 27% af íbúðalánum bankans en önnur íbúðalán eru verðtryggð.Gæði íbúðalánasafns bankans hafa aukist jafnt og þétt með bættri veðstöðu og lækkun vanskila. Hækkun var þó á vanskilum árið 2013 sem skýrist af því að lán sem bankinn fékk í tengslum við uppgjör skulda Dróma það ár voru síðri í þessu tilliti og hækkuðu vanskil íbúðalána. Helstu ástæður lækkunar vanskila árið 2015 eru bætt efnahagsumhverfi, endurskipulagning sem og framgangur í innheimtuferli lána.
Áhættudreift lánasafn
Lán til viðskiptavina eru vel dreifð. Lán til einstaklinga eru 48% af heildarlánum til viðskiptavina og þar af eru 83% til íbúðakaupa. Fyrirtækjalán eru fyrst og fremst til þriggja atvinnugreina: Fasteignaviðskipta og byggingastarfsemi, fiskveiða og -vinnslu og heildsölu og smásölu, sem eru 29%, 21% og 15% af fyrirtækjalánum, í þessari röð. En þótt áhættudreifing til einstaklinga og atvinnugreina sé góð, er enn nokkur samþjöppun á einstök nöfn viðskiptavina.Útlánasamþjöppun á einstök nöfn fer lækkandi
Í árslok 2015 var ein áhættuskuldbinding til hóps tengdra aðila hærri en 10% af eiginfjárgrunni (svokallaðar stórar áhættuskuldbindingar). Um var að ræða fjármálastofnun. Í árslok 2014 voru stórar áhættuskuldbindingar tvær. Eins og sjá má af myndinni hér að neðan, hefur samtala stórra áhættuskuldbindinga án lána til fjármálastofnanna lækkað mikið frá 2011 en þá var hún 87% af eiginfjárgrunni. Samtala áhættuskuldbindinga til hóps tengdra aðila sem eru hærri en 2,5% af eiginfjárgrunni hefur hækkað á milli ára – var 99% í árslok 2015, samanborið við 88% við árslok 2014.Tryggingarþekja lána til viðskiptavina
Til tryggingar á lánum eru fasteignir einstaklinga og viðskiptahúsnæði algengust eða 74% af heildartryggingum. Einnig eru til tryggingar fiskiskip auk annarra áþreifanlegra verðmæta, s.s. verðbréfa og reiðufjár. Bankinn leggur mikla áherslu á utanumhald trygginga, þ.m.t. verðmat og miðlæga skráningu. Í árslok 2015 var heildarvirði lána til viðskiptavina 680.350 milljónir króna tryggt með tryggingum að heildarverðmæti 582.774 milljónir króna og er heildarveðþekja því 86%, en eins og fram kemur á myndinni fyrir neðan er veðþekja ólík milli atvinnugreina.
Gæði lánabókar aukast stöðugt
Bankinn skilgreinir vandræðalán sem þau lán sem eru í vanskilum í yfir 90 daga og lán sem hafa verið varúðarniðurfærð, óháð fjölda vanskiladaga. Hlutfall vandræðalána hefur lækkað stöðugt frá því að það var hæst árið 2010. Það hefur fyrst og fremst tekist með endurskipulagningu lána og úrlausn ólöglegra gengistryggðra lána. U.þ.b. helmingur vandræðalána er í 90 daga vanskilum en án varúðarniðurfærslu, sökum þess hversu vel þau eru tryggð.Sundurbrot á vandræðalánum
Tryggingar vandræðalána
Rekstraráhætta
Arion banki skilgreinir rekstraráhættu sem áhættu á beinu eða óbeinu tapi vegna ófullnægjandi innri verkferla, mannlegra mistaka, kerfismistaka eða vegna ytri atburða í rekstrarumhverfi, sem áhrif hafa á rekstur bankans. Bankinn skilgreinir upplýsingatækniáhættu, lagalega áhættu og orðsporsáhættu sem hluta af rekstraráhættu.Ábyrgð á stjórnun eigin rekstraráhættu liggur hjá sviðum bankans. Rekstraráhættudeild ásamt sviðunum stýrir þróun og viðheldur aðferðum til að greina, mæla, hafa eftirlit með og stjórna rekstraráhættu.
Helstu aðferðir bankans til að mæla rekstraráhættu eru:
- Skráning tapsatburða (e. Loss Data)
- Áhættusjálfsmat (Risk and Control Self-Assessment)
- Áhættuvísar (Key risk indicator)
Fylgst er reglulega með áhættuvísum, en það eru lykilstærðir sem geta gefið vísbendingu um að áhætta sé að aukast og fara umfram áhættuvilja. Skýrslugjöf til yfirstjórnar byggir m.a. á skráðum tapsatburðum, niðurstöðum úr áhættusjálfsmati og áhættuvísum.
Stjórnun upplýsingaöryggis fellur undir öryggisstjóra. Samskiptagáttum til viðskiptavina fer fjölgandi og hröð þróun tengd tækniumhverfinu veldur því að aukin áhætta er tengd upplýsingaöryggi. Bankinn heldur því áfram að leggja aukna áherslu á stjórnun upplýsingaöryggis. Upplýsingaöryggi felur í sér leið til að tryggja leynd, réttleika og tiltækileika.
Við útreikning á eiginfjárkröfu vegna rekstraráhættu beitir bankinn staðalaðferð (e. Standardised Approach). Eiginfjárbinding vegna rekstraráhættu fyrir árið 2015 var 6.515 m.kr.
Markaðsáhætta
Markaðsáhætta er hættan á að verð- og vaxtabreytingar á fjármálamörkuðum hafi áhrif á virði og greiðsluflæði fjármálagerninga bankans. Helstu áhættuþættir eru vaxta-, hlutafjár- og gjaldeyrisáhætta.
Vaxtaáhætta stafar að mestu leyti af því að fyrir hluta efnahagsreiknings bankans er misræmi milli gjalddaga vaxtaberandi eigna og skulda og gildistími vaxta er mismunandi. Almennt er virði fastvaxtaeigna bankans meira en virði skulda með samsvarandi gildistíma vaxta, enda er bankinn að miklu leyti fjármagnaður með innlánum. Hækkun markaðsvaxta hefði því neikvæð áhrif á afkomu bankans. Stærstur hluti áhættunnar stafar af safni verðtryggðra íbúðalána á föstum vöxtum sem voru upphaflega gefin út á árunum 2004 til 2006. Áhættan er þó varin að miklu leyti þar sem safnið er að hluta fjármagnað með samningsbundnum sértryggðum skuldabréfum á föstum vöxtum. Bankinn hefur dregið úr þessari áhættu með útgáfu nýrra sértryggðra skuldabréfa og með því að bjóða viðskiptavinum sínum upp á lán með breytilegum vöxtum. Þar að auki hafði höfuðstólsleiðréttingin sem kom til framkvæmda á árinu 2015 áhrif til lækkunar á áhættunni.
Stærsta hlutafjáráhættan stafar af eign bankans í óskráðum hlutabréfum sem féllu í hans hlut í tengslum við endurskipulagningu fyrirtækja í kjölfar efnahagshrunsins árið 2008. Áhættan hefur minnkað undanfarin misseri samfara sölu bankans á hlutabréfum í umræddum félögum. Staða samstæðunnar í hlutdeildarfélögum við lok árs 2015 endurspeglar söluvirði Bakkavarar Group Ltd. en í kjölfar sölunnar í byrjun 2016 verður staðan í hlutdeildarfélögum óveruleg.
Hlutabréfastaða á veltubók hefur aukist jafnt og þétt vegna aukinnar veltu og umsvifa á markaði. Áhættustýring fylgist náið með áhættunni og hefur eftirlit með því að stöður séu innan heimilda og tryggingar séu til staðar.
Gjaldeyrisáhætta bankans felst í hættunni á að sveiflur í gengi íslensku krónunnar hafi óhagstæð áhrif á afkomu bankans. Gjaldeyrisójöfnuður samstæðunnar í lok árs 2015 var 32,1 milljarðar kr. Sú staða endurspeglar hagnaðinn af sölu bankans á hlut sínum í Bakkavör en það dregur aftur úr ójöfnuðinum í kjölfar sölunnar í byrjun árs 2016. Gjaldeyrisójöfnuður móðurfélagsins hefur verið stöðugur allt frá fyrri hluta árs 2012. Bankinn notar afleiðusamninga að nokkru leyti til að verja sig gegn gjaldeyrisáhættu.
Hrein staða verðtryggðra eigna og skulda bankans var 95,0 milljarðar kr. í lok árs 2015. Verðtryggingarójöfnuðurinn jókst árið 2013 að mestu leyti vegna yfirtöku bankans á lánum í tengslum við uppgjör Drómaskuldabréfsins. Hækkunin árið 2014 kemur að mestu til vegna uppgreiðslu á samningsbundum sértryggðum skuldabréfum en á móti hafa nýjar lögbundnar verðtryggðar útgáfur verið gefnar út með reglulegu millibili. Verðtryggð útlán og lántökur bankans hækka nokkurn veginn í takt árið 2015 en að öðru leyti vega afleiðustöður þyngst til hækkunar á hreinu stöðunni á árinu.
Lausafjáráhætta
Lausafjáráhætta er sú áhætta að samstæðan, þrátt fyrir að vera gjaldfær, lendi í erfiðleikum með að mæta skuldbindingum sínum þegar þær gjaldfalla eða geti aðeins tryggt endurgreiðslu með óhóflegum kostnaði.Samhliða innramatsferli fyrir eiginfjárþörf metur bankinn lausafjárþörf samkvæmt innramatsferli (e. Internal Liquidity Adequacy Assessment Process, ILAAP). Ferlinu er ætlað að tryggja að bankinn búi yfir nægu lausu fé og að viðeigandi áætlanir, stefnur, aðferðir og kerfi séu til staðar til að greina, stýra og fylgjast með lausafjáráhættu.
Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands fara með eftirlit með því að bankinn uppfylli kröfur og skyldur vegna lausafjáráhættu.
Nánar er fjallað um lausafjárstöðu og lausafjáráhættu hér.