Áhættustýringarsvið
Áhættustýringarsvið bankans er sjálfstæð stjórnunareining og ber ábyrgð gagnvart bankastjóra. Í árslok 2015 störfuðu 27 starfsmenn á áhættustýringarsviði. Framkvæmdastjóri sviðsins er Gísli Óttarsson.
Áhættustýringarsvið skiptist í fjórar einingar.
Lánagreining styður við og hefur eftirlit með lánaumsóknarferli og lánveitingarákvörðunum, allt frá undirbúningi umsóknar til útgreiðslu láns. Einingin er helsti tengiliður áhættustýringar við lánanefndir bankans og gefur skriflegt álit á öllum lánaumsóknum sem fara fyrir lánanefnd stjórnar og lánanefnd Arion banka.
Útlánaeftirlit fylgist með ótryggum og niðurfærðum útlánum gagnvart einstökum viðskiptavinum, ákvarðar niðurfærslu lána og gefur skýrslu um niðurfærslur og afskriftir til lánanefndar Arion banka. Einingin hefur einnig eftirlit með safnlægri útlánaáhættu í lánasafni bankans, eins og samþjöppun á einstaka lántakendur eða á einstakar atvinnugreinar, auk þess að hafa eftirlit með fjárhagslega tengdum aðilum og stórum áhættuskuldbindingum til fjárhagslega tengdra aðila.
Efnahagsáhætta greinir og hefur eftirlit með öllum kerfislægum ójöfnuði og áhættum í efnahagsreikningi bankans, þ.m.t. eigin fé og ber ábyrgð á framkvæmd innra mats á eiginfjárþörf (ICAAP) bankans. Einingin ber ábyrgð á þróun og rekstri lánshæfismatslíkana og álagsprófa.
Rekstraráhætta tilheyrir annarri varnarlínu og hefur eftirlit með áhættu sem tengist daglegum rekstri bankans. Deildin styður svið bankans við innra eftirlit og ber ábyrgð á framkvæmd áhættusjálfsmata, skráningu tapsatburða og gerð verkferla.
Öryggisstjóri bankans tilheyrir áhættustýringu en meginhlutverk hans er að vinna að stefnumótun öryggismála, hafa yfirumsjón með þeim og upplýsa Öryggisnefnd og framkvæmdastjórn. Hann ber jafnframt ábyrgð á viðbragðsáætlunum bankans.
Nánari umfjöllun um áhættustýringu bankans er að finna í sérstökum kafla um áhættustýringu og í áhættuskýrslu bankans fyrir árið 2015.
Regluvarsla
Innan bankans starfar sjálfstæður regluvörður samkvæmt erindisbréfi frá stjórn. Regluvörður heyrir beint undir bankastjóra og gefur reglulega skýrslu um störf sín. Regluvörður hefur heimild til að skjóta málum beint til stjórnar, ef hann telur slíkt nauðsynlegt.
Helstu hlutverk regluvörslu eru:
- Að fylgjast með og meta reglulega hæfi og skilvirkni ráðstafana sem gripið hefur verið til með það að markmiði að lágmarka hættu á misbrestum við að uppfylla skyldur samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti og lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
- Að veita starfsmönnum nauðsynlega fræðslu og ráðgjöf til að uppfylla skyldur sínar og bankans samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti, lögum um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka o.fl.
- Að rannsaka og tilkynna yfirvöldum um grun um peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka eða grun um markaðssvik. Regluvarsla framkvæmir einnig sjálfstæðar rannsóknir ef upp kemur grunur um brot gegn samkeppnislögum.
- Regluvörður sinnir einnig útvistuðum verkefnum frá Stefni hf. og tilteknum lífeyrissjóðum.
Hákon Már Pétursson er regluvörður Arion banka og var regluvarsla með sjö starfsmenn í árslok 2015.
Innri endurskoðun
Innri endurskoðandi er skipaður af stjórn og heyrir beint undir hana. Stjórn setur innri endurskoðanda erindisbréf sem skilgreinir ábyrgð og umfang vinnu hans. Hlutverk innri endurskoðunar er að veita óháða og hlutlæga staðfestingu og ráðgjöf sem ætlað er að vera virðisaukandi og bæta rekstur bankans. Endurskoðunin nær yfir bankann sjálfan, flest dótturfélög og lífeyrissjóði í rekstri hans.
Erindisbréf innri endurskoðanda, leiðbeinandi tilmæli FME um störf endurskoðunardeilda fjármálafyrirtækja nr. 3/2008 og alþjóðlegir staðlar um innri endurskoðun móta endurskoðunina. Skoðunum innri endurskoðunar bankans lýkur með endurskoðunarskýrslu þar sem settar eru fram áhættumiðaðar athugasemdir með tímasettum kröfum um úrbætur. Innri endurskoðun fylgir úrbótum eftir ársfjórðungslega.
Í innri endurskoðun störfuðu 7 starfsmenn í árslok 2015. Lilja Steinþórsdóttir er innri endurskoðandi Arion banka.
Umboðsmaður viðskiptavina
Umboðsmaður viðskiptavina er skipaður af bankastjóra. Hlutverk hans er að tryggja sanngirni og hlutlægni gagnvart viðskiptavinum, koma í veg fyrir mismunun og tryggja að ferli við meðferð mála sé gegnsætt og skriflegt.
Umboðsmaður viðskiptavina tók til skoðunar 185 mál á árinu 2015, samanborið við 202 mál árið 2014.
Helgi G. Björnsson er umboðsmaður viðskiptavina Arion banka.